Ferdalangurinn Kristofer!

Staðsetning: Melbourne

09.04.2007 07:47:20 / Kristófer

Mögnuð páskaferð!

Við fórum með finnunum sem þau þekkja hérna, susönnu, kim, inku og jesper en Inka og Thelma eru saman í bekk. Við vorum í Sorrento sem er svona klukkutíma keyrsla héðan en 2 tíma í páskatraffíkinni. Það var ógeðslega gaman og ég var mjög oft að leika við Jesper sem er 2 ára og kann sko að sparka í bolta! Svo fara að koma myndir á næstu dögum úr ferðinni og ég læt þær örugglega hérna inn.

 

Við fórum á fimmtudagskvöldið og það tók okkur um 2 tíma að keyra þangað. Finnarnir voru mættir þegar við komum og ég var í spreng og mætti 5 eða 6 daddy longley (stórar kóngulær) á klósettinu, ekki girnilegt. Svo pöntuðum við einhverskonar pastarúllur. Svo fórum við bara snemma að sofa minnir mig.

Daginn eftir fórum við á ströndina og ég hljóp um eins og vitleysingur í sjónum á nærbuxunum og skemmti mér verulega vel, réðst á öldurnar eins og mína verstu óvini. Svo fórum við heim og gerðum eitthvað ómerkilegt minnir mig og borðuðum heima um kvöldið en var samt í 3-4 tíma úti í garðinum að leika við stelpurnar og Jesper. Kenndi Thelmu m.a. að sparka í bolta svona betur en hún kunni.

Svo á laugardeginum pöntuðum við tíma hjá ástralíumeistara kvenna í surfi og til að læra að surfa. Tíminn var klukkan 10 og við fengum blautbúning og svona, en brimbrettin voru stór. Svo var okkur kennt allar öryggisreglurnar og svona. Svo fengum við að fara útí og ég stóð 2 upp!! í 1 eða 2 sekúndur svo datt ég. Svo fórum við heim og Unnur var búinn að gera rosalega góðan hádegismat fyrir okkur. ég var svo úti í fótbolta og svo fórum við 5:30 út að borða á geðveikt skemmtilegum stað þar sem það var kids corner. Billiard og borðtennisborð og rosalegt fjör. Pabbi vann mig í billiard en svo held ég að ég hafi unnið í borðtennis en whatever það var geðveikt gaman og góður matur. Svo fórum við heim og horfðum á Borat! hún er alltaf jafnfyndin nema þegar þú ert búin að horfa 1 á hana.

Páskasunnudag vöknuðu krakkarnir klukkan 6 og vöktu okkur til þess að leita að páskaeggjum, 25 lítil og 3 stór voru falin frá páskakanínunni. Krakkarnir borðuðu þetta í morgunmat á meðan fullorðna fólkið fékk 1 stykki íslenskt páskaegg og við fengum málsháttinn: lengi býr af fyrstu gerð. Svo voru mismunandi skoðanir um hvað það þýddi... Klukkan 9 vorum við aftur komin í blautbúning á leiðinni að snorkla með höfrungum og selum!! Það er svoldið trikkí að snorkla en mér tókst það og ég sá helling þegar ég var í bátnum en bara 1 fyrir neðan mig sem var geðveikt flott. Svo fórum við að selunum en við pabbi vorum bara stutt með þeim og fórum svo aftur í bátinn. Við fórum heim og það var barist um sturtuna. Svo fórum við á flottan restaurant um kvöldið og við fengum mjög góðan mat. Ég var meðal annars að leika mr. bean í nýju myndinni með rækjurnar eða humarinn eða hvað það var. Svo borðaði ég augað úr rækjunni, bara kyngdi ekkert að tyggja. Svo fórum við heim og ég lék við Jesper og hann krafðist þess að ég klæddi hann í náttföt en ég var sniðugur og bað hann um að sína mér hvernig það væri gert því ég kynni það ekki. Ég hringdi svo í mömmu og við horfðum á Hitch.

Vöknuðum snemma í morgun og fórum að pakka niður og fórum svo og keyrðum upp á fjall og sáum geggjað útsýni. Svo aftur niður og á ströndina og skemmtum okkur vel og veiddum 2 síli og fundum mjög skrítnar rauðar slöngur og helling af skelfiskum sem við ætlum að láta í heitt vatn á eftir. Erum núna komin heim og erum að fara að borða.

 

Það koma bráðlega myndir hérna einhverstaðar og auðvitað líka á myndasíðuna en núna þarf account og þarf að redda því... einhverjum guest eða eitthvað.

 


Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Hven�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 733848 dögum
Skemmtilegir tölvuleikir
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1097 dögum
�?�?�?�??�?�?��?¾a�?�?�?�??�?�??�?° eru...
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1020 dögum
Dagsetning
18. mars 2010
Leitarbox