Ferdalangurinn Kristofer!

Staðsetning: Melbourne

01.06.2007 22:48:19 / Kristófer

mánuður í viðbót!!

jæja núna er bara mánuður í viðbót. Við unnum 2-1 um síðustu helgi á móti einhverju liði og það var skurður við hliðina á vellinum og völlurinn var pínkulítill. Pabbi er komin heim til íslands en hann kemur aftur hingað á næsta föstudag. Allt gengur annars vel hér. Thelma og Elísa eru rosalega duglegar. Elísa er alltaf að lyfta haus og reyna að tala við okkur. Annars er ekkert meira að gerast hérna. Keppa um helgina, kannski 2 leiki.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 06:25:48 / Kristófer

Brighton 4 - 1 Sandringham, Búin i camp!!

Við spiluðum við Sandringham um helgina, mér fannst hundleiðinlegt, ég fékk eiginlega ekkert að spila og var bara á bekknum allan tímann og sá eini sem var að halda á mér hita en allir hinir voru látnir inná (þeir sem sátu þarna og gerðu ekki neitt voru látnir inná) í staðinn fyrir þann sem var að halda á sér hita.

Svo var ég að koma heim úr camp sem við fórum í á phillip island (við úr skólanum). Við fórum klukkan 7:30 á mánudaginn í 2 rútum og rútan sem ég var í var með sjónvarpi. Við horfðum á napoleon dynamite á leiðinni. Svo vorum við komin um svona 10 og við biðum úti í kuldanum í klukkutíma og hlustuðum á einhverjar ræður frá kennurunum.

Svo fór fyrsti hópurinn að surfa um 10:30 og við (seinni hópurinn fórum í hundleiðinlegan göngutúr á ströndinni. Svo eftir hádegi máttum við fara að surfa og sleppa öllum activities í staðinn sem var náttúrulega bara bull og við vildum ekkert fara að surfa þá. Svo fórum við aftur upp í camp og fórum í herbergið okkar. Ég, Pat, Sam, Seth og Dennis vorum saman í herbergi nr 61. Svo fórum við og leiðinlega konan skipti mér , sam og pat í sitthvorn hópinn og við fengum ekki að vera saman, asnalegt að þú megir ekki vera að gera eitthvað skemmtilegt með vinum þínum. En allaveganna ég fór í high ropes sem er svona dót 5m upp í loftið og þú þarft að fara yfir hindranir og svona og þú getur bara stigið á reipi og svona, erfitt að útskýra. Svo fengum við free time og fórum svoí hjólatúr í gegnum koala reserve en sáum bara kengúrur og wallabies.

Svo var komin kvöldmatur, við fengum fish og chips og mér fannst það ekki gott það var bara mjúkt og vont. Sem betur fer var ég með snakk og Sam var með endalaust af nammi og snakki, fullan bakpoka. Svo var trivia night og ég var með Sam, Pat og einhverjum fleirum í liði og við lentum neðarlega enda voru bara einhverjar ömurlegar spurningar bara fyrir stelpur. Það var m.a. spurt um ilmvötn og australias next top model og helling af dóti. Það var ein spurning um íþróttir og það var hvaða liði David Beckham væri búin að skrifa undir samning með og væri að fara að spila með.

Svo var komin háttatími eða "movietime" eins og Sam vildi kalla það en hann var með ferða DVD spilara og við sátum og horfðum á bíómyndir til 2. Svo þurftum við að vakna til að leggja á borð fyrir morgunmat, flókið system sem ég nenni ekki að útskýra. En allaveganna morgunmaturinn er alltaf bestur, brauð og just right. Ég borðaði örugglega 20 brauðsneiðar til að verða ekki svangur allan daginn. Svo fórum við í activities. Við fórum í "the giant swing" sem var 15 metrar upp í loftið. Hún virkar þannig að þú ert festur á milli 2 banda og svo toga allir þangað til að þú ert komin upp á topp. Þá togarðu í reipi og dettur niður, við fengum að velja í hópa í þessu sem betur fer og ég var með Sam , Pat, Lillian, Gabbi og svo einhverjum stelpum sem þær völdu sem öskruðu eins og brjálæðingar í rólunni. Svo fórum við í Team Rescue og kennarinn sagði okkur rosalega sögu og svo áttum við að fara með blautbúning á sjúkrabörum yfir helling af dóti og bjargar honum úr Amazon frumskóginum.

Svo kom hádegismatur, ég var ekkert rosalega svangur en það var Taco og ég, Pat og Sam fórum í mana og létum mjög mikið af Chilli á tacoið okkar og svo örugglega 100g af pipar. Svo kláraðist djúsinn og við vorum eins og drekar þarna og Gabbi og Lillian skellihljæjandi þarna og neituðu að ná í meiri djús. Það endaði með því að Sam náði í meira og vildi varla leyfa okkur að fá. 

Svo fórum við í fleiri activities og ég fór aftur í high ropes, ég elskaði það það var snilld og í þetta skiptið var ég ekkert hræddur nema þegar það byrjaði að ískra í þessum reipum en ég hljóp yfir í þetta skipti og svo var svo fyndið að horfa á Sam og Pat en þeir voru í svo miklum vandræðum að það var ekki eðlilegt, alltaf að detta.  Eftir fjörið var komin kvöldmatur :whut: ógeðslegt kalt kjöt með heitu grænmeti og kartöflu, ég borðaði kartöfluna með bestu lyst en ég er ekki mikið fyrir kartöflur og tók svo smá bita af kjöti. Svo var "movietime" nema að það var ekki í DVD spilaranum hans Sam, það var í salnum. Við horfðum á happy feet, HÚN ER HUNDLEIÐINLEG!!!!!! en svo var komin "real movietime" í DVD spilaranum hans Sam. Við vöktum ekki jafn lengi en við horfðum á The girl next door og Night at the Museum.

Svo var miðvikudagur og tími til að fara heim!! bara 15 brauðsneiðar í morgunmat og smá Just Right, ég var orðinn mjög svangur en það var eiginlega bara súkkulaði ullabjakk eftir í bakpokanum hjá Sam kvöldið áður. Svo fórum við, eftir að hafa pakkað og beðið í klukkutíma úti í kuldanum, ég var klæddur eins og á íslandi í flíspeysu og allt.

Svo fórum við í einhvern bæ og Ég og Sam löbbuðum upp í Coles til að kaupa okkur almennilegan hádegismat, við týndum Pat á leiðinni, en fundum hann aftur á leikvellinum þar sem rúturnar voru. Ég keypti mér shapes sem er svona nokkurskonar snack, mentos og Powerade. Draumahádegismatur!

Svo lögðum við aftur af stað og það var allt að gerast í kringum okkur í rútunni. Einn strákurinn fékk blóðnasir og þá kom annar og ældi á skóinn hjá gaurnum sem fékk blóðnasir og svo þreif hann það ekki nógu vel og þegar ég stóð upp steig ég í helvítis æluna. Svo vorum við komin aftur í skólann um 3 og biðum í 10 mín eftir töskunni minni sem var í hinni rútunni sem var á eftir okkur en hún kom 10 mínutum á eftir okkur.

Svo kom ég hingað heim á Wave street og er ekki búinn að gera mikið merkilegt síðan nema þetta risastóra blogg! 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 21:52:00 / Kristófer

Beumaris 0 - 1 Brighton

Við unnum Beumaris í deildinni á síðasta sunnudag og sitjum á toppnum með 6 stig örugglega ásamt einhverjum öðrum, en við erum örugglega með betri markatölu.

Við keyptum XBOX 360 á sunnudaginn eftir leikinn ;þ og við Thelma fengum að velja okkur sitthvorn leikinn. Thelma valdi Cars og ég valdi Pro Evolution Soccer 6 og hann er gargandi snilld, sérstaklega þar sem að XBOX tölvan er tengd við skjávarpann, risastórt!! Mér finnst langskemmtilegast að spila á netinu, það er bara eitt vandamál, ég tapa alltaf!!! ég er búin að gera 2 jafntefli og vinna 1, ég vann þegar hinn gaurinn datt útaf netinu ;D hann var að vinna 3-0 áður en hann datt útaf.

Það líður öllum vel hérna, Elísa er alltaf að virða fyrir sér heiminn, hún er rosalega sterk og finnst gott að taka í hárið á öðrum eins og mér ;D Hún er oft að brosa núna og byrjuð að hjala! Svo verður hún örugglega byrjuð að skríða 2-3 mánaða en hún er alltaf að spyrna sér burt og getur velt sér yfir á hliðina.

Thelma hefur það líka gott. Hún er byrjuð í fótbolta eftir skóla á þriðjudögum og ballett á mánudögum, nóg að gera. Svo er hún líka voða glöð eftir að ég og litla systir komum og hún er rosalega góður bílstjóri í Cars.

 

 

Muna að skoða myndir á myndasíðunni ;D 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 21:42:53 / Kristófer

Nýjar myndir á myndasíðunni!

Núna er komnar nýjar myndir á myndasíðuna ;Þ Albúmið heitir fyrstu dagarnir eða eitthvað svoleiðis, ef þú ert ekki búin að skrá þig, gerðu það strax af því að það er þess virði!

Annars unnu strákarnir í Brighton fyrsta leikinn í deildinni á sunnudaginn 4-0 á móti endavour united eða eitthvað svoleiðis, leikurinn hefði auðvitað farið 8-0 hefði ég mátt spila ;Þ en ég fór með pabba og Thelmu að horfa á, svo er skóli eftir klukkutíma og loksins æfing í kvöld.

Ég er að fara í music í skólanum :(:cry::$:frown:

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 10:42:52 / Kristófer

Vááá hvað tíminn líður!

Tíminn líður ekkert smá hratt hérna! Vorum að keppa síðasta laugardag, á móti Brigton U13A og unnum 6-2 ;Þ, ég tognaði reyndar =( en skoraði fyrsta markið ;Þ Það er búið að ákveða nafn á litlu systir en ég má ekkert segja. Ekki mikið að gerast nema skóli..... Kemst vonandi að keppa á sunnudaginn, fer örugglega ekki á æfingu á morgun en það er frí í skólanum á morgun ;Þ

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 08:05:47 / Kristófer

Nokkrar myndir herna niðri! ;D

Ég bjó til albúm hérna niðri sem heitir litla systir, skoða það!

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 07:49:42 / Kristófer

LITLA SYSTIR!!!!! ;Þ

Þann 26 apríl kom litla systir í heiminn!!!! Hún er ógeðslega sæt og krumpuð ;D Við gistum hjá sophiu vinkonu hennar Thelmu en ég svaf ekki mikið þá nóttina, svo fór ég dauðþreyttur í skólann. Litla systir maronsdóttir er komin heim, komum með þær heim í gær og Unnur er uppi að gefa henni núna, hún er komin á myndasíðuna og allir geta skoðað þegar þeir eru búnir að skrá sig ;D ;D ;D Er svo að fara á æfingu og keppa á morgun P.S. Hún er ógeðslega sæt, ætla að reyna að koma henni á display picture á msninu, Adda kristofermar@gmail.com

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 21:57:20 / Kristófer

Brighton A 8 - 1 Brighton B, 7 dagar í 2 maí!!!

Töpuðum 8 - 1 fyrir a-liðinu um daginnn :$:$:$:$:$ Þeir voru komnir með geðveikt góða leikmenn, helling af asíubúum. Annar hefur ekkert verið að gerast, fórum reyndar á vísindasafnið alltaf gaman að fara á vísindasafnið ;Þ Fórum á KFC fyrst, KFC er greinilega ekki SKYNDIBITASTAÐUR við biðum í 5 manna röð í hálftíma. Það voru 2 ungar að afgreiða og þær voru báðar byrjendur, fyrsti dagurinn hjá einni. Hún vissi ekki hvort hún átti að þrífa borðin eða ekki. Við hefðum átt að fara í bílalúguna og fara svo inn með matinn, það hefði sparað okkur 15 mínútur eða svo. Á vísindasafninu komumst við að því að mælirinn til að mæla hæðina er bilaður. Ég er ekki 1,71 og pabbi er ekki 1,82. Annars var gaman, við tókum upp veðurfréttir.

Thelma var í fríi í gær og svo erum við bæði í fríi í dag, ég hata Music og kennarann. Mér fannst algjört svindl að Thelma fengi að vera í fríi á Þriðjudegi. Það er Anzac day í dag, einhver svona hermannadagur en öll fjölskyldan í fríi!! Vonandi gerum við eitthvað skemmtilegt.

Ekkert fleira í fréttum, bara svo margir að bíða eftir bloggi.

Muna myndasíðuna bráðum koma Videomyndbönd ;Þ 


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 21:48:19 / Kristófer

Brighton 7 - 1 Port Melbourne!

Við unnum Port melbourne 7-1 á síðasta sunnudag og ég náði ekki að skora en þessi markmaður virtist bara get varið frá mér glæsilega. Við höfðum 7 mismunandi markaskorara af 15 leikmönnum. Þessi dómari kom líka ekki frá sömu plánetu og við, ef markmaðurinn trukkaði okkur niður (gerðist 2) eftir að við skutum þá fékk hann aukaspyrnu þar sem við áttum að fá víti.

Svo var fyrsti skóladagurinn á þessari önn í gær, loksins fékk ég skáp svo ég þyrfti ekki að burðast um með allt í töskunni! skáp númer 103.  Svo gerðum við eikkað leiðinlegt þangað til í lunch brake þá fór ég í fótbolta með gaurunum í year 12 og Soccy mætti ekki í skólann (hann var að keppa við okkur í gær.)

 

Ef einhver er ekki með MSN-ið mitt þá adda kristofermar@gmail.com og þá er hann með það og muna að skrá sig á myndasíðuna. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 03:24:31 / Kristófer

MYNDIR!

Núna er búið að redda myndunum inná myndasíðuna... Það þarf bara að skrá sig.

Þið farið inn á http://www.gallery.transistor.tv (það er tengill hérna til hliðar) og þið farið í register.

Svo veljiði username og password og skrifið fullt nafn og email og bla bla bla og ýtið á register fyrir neðan.

Svo þarf Unnur bara að accepta, hún fær póst um leið og það verður í síðasta lagi komin accountinn ykkar eftir 24 klukkutíma. Svo einfalt er það.

Ég ætti að blogga að minnsta kosti 1-2 sinnum í viku svo að þið þurfið að vera dugleg að checka. Veit að sumir checka á hverjum degi.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 10:49:07 / Kristófer

Jæja... skóli eftir 4 daga

Ekkert búið að vera að gerast hér nema það að Thelma kom niður áðan og Unnur spurði hvort hún væri komin til að knúsa hana. Nei sagði Thelma. Pabbi bara sofnaði í mínu rúmi! hahahah við sprungum úr hlátri svo fór ég og vakti hann með því að slökkva og kveikja ljósinn. Ég er ennþá í hálf-hláturskasti.

Chelsea komið í undanúrslit og mætir lifrapollum... great news for us!

Thelma kom með einn gullmola í dag en ég man ekkert hvað við vorum að tala um en hún sagði: mamma ég hef aldrei komið þarna, bara 1 sinni.

Við fórum reyndar í sund í dag. Ég er að drepast í augunum er með svo mikið klór í þeim.

Var að passa Thelmu í gær og aftur á morgun og var að hálfpassa hana í dag í sundinu.

 

 

Horfa á einhverja bíómynd af flakkaranum...vonandi aftur Borat 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 07:47:20 / Kristófer

Mögnuð páskaferð!

Við fórum með finnunum sem þau þekkja hérna, susönnu, kim, inku og jesper en Inka og Thelma eru saman í bekk. Við vorum í Sorrento sem er svona klukkutíma keyrsla héðan en 2 tíma í páskatraffíkinni. Það var ógeðslega gaman og ég var mjög oft að leika við Jesper sem er 2 ára og kann sko að sparka í bolta! Svo fara að koma myndir á næstu dögum úr ferðinni og ég læt þær örugglega hérna inn.

 

Við fórum á fimmtudagskvöldið og það tók okkur um 2 tíma að keyra þangað. Finnarnir voru mættir þegar við komum og ég var í spreng og mætti 5 eða 6 daddy longley (stórar kóngulær) á klósettinu, ekki girnilegt. Svo pöntuðum við einhverskonar pastarúllur. Svo fórum við bara snemma að sofa minnir mig.

Daginn eftir fórum við á ströndina og ég hljóp um eins og vitleysingur í sjónum á nærbuxunum og skemmti mér verulega vel, réðst á öldurnar eins og mína verstu óvini. Svo fórum við heim og gerðum eitthvað ómerkilegt minnir mig og borðuðum heima um kvöldið en var samt í 3-4 tíma úti í garðinum að leika við stelpurnar og Jesper. Kenndi Thelmu m.a. að sparka í bolta svona betur en hún kunni.

Svo á laugardeginum pöntuðum við tíma hjá ástralíumeistara kvenna í surfi og til að læra að surfa. Tíminn var klukkan 10 og við fengum blautbúning og svona, en brimbrettin voru stór. Svo var okkur kennt allar öryggisreglurnar og svona. Svo fengum við að fara útí og ég stóð 2 upp!! í 1 eða 2 sekúndur svo datt ég. Svo fórum við heim og Unnur var búinn að gera rosalega góðan hádegismat fyrir okkur. ég var svo úti í fótbolta og svo fórum við 5:30 út að borða á geðveikt skemmtilegum stað þar sem það var kids corner. Billiard og borðtennisborð og rosalegt fjör. Pabbi vann mig í billiard en svo held ég að ég hafi unnið í borðtennis en whatever það var geðveikt gaman og góður matur. Svo fórum við heim og horfðum á Borat! hún er alltaf jafnfyndin nema þegar þú ert búin að horfa 1 á hana.

Páskasunnudag vöknuðu krakkarnir klukkan 6 og vöktu okkur til þess að leita að páskaeggjum, 25 lítil og 3 stór voru falin frá páskakanínunni. Krakkarnir borðuðu þetta í morgunmat á meðan fullorðna fólkið fékk 1 stykki íslenskt páskaegg og við fengum málsháttinn: lengi býr af fyrstu gerð. Svo voru mismunandi skoðanir um hvað það þýddi... Klukkan 9 vorum við aftur komin í blautbúning á leiðinni að snorkla með höfrungum og selum!! Það er svoldið trikkí að snorkla en mér tókst það og ég sá helling þegar ég var í bátnum en bara 1 fyrir neðan mig sem var geðveikt flott. Svo fórum við að selunum en við pabbi vorum bara stutt með þeim og fórum svo aftur í bátinn. Við fórum heim og það var barist um sturtuna. Svo fórum við á flottan restaurant um kvöldið og við fengum mjög góðan mat. Ég var meðal annars að leika mr. bean í nýju myndinni með rækjurnar eða humarinn eða hvað það var. Svo borðaði ég augað úr rækjunni, bara kyngdi ekkert að tyggja. Svo fórum við heim og ég lék við Jesper og hann krafðist þess að ég klæddi hann í náttföt en ég var sniðugur og bað hann um að sína mér hvernig það væri gert því ég kynni það ekki. Ég hringdi svo í mömmu og við horfðum á Hitch.

Vöknuðum snemma í morgun og fórum að pakka niður og fórum svo og keyrðum upp á fjall og sáum geggjað útsýni. Svo aftur niður og á ströndina og skemmtum okkur vel og veiddum 2 síli og fundum mjög skrítnar rauðar slöngur og helling af skelfiskum sem við ætlum að láta í heitt vatn á eftir. Erum núna komin heim og erum að fara að borða.

 

Það koma bráðlega myndir hérna einhverstaðar og auðvitað líka á myndasíðuna en núna þarf account og þarf að redda því... einhverjum guest eða eitthvað.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 12:24:18 / Kristófer

Ekki mikið búið að vera að gerast hjá mér.....

Það er búnir nokkrir dagar í skólanum en er komin í frí núna. Fékk mikið af heimavinnu og m.a. eitt leiðinlegasta verkefni í heimi um tré, skóga og allt mögulegt sem tengist við. Ég fór á æfingu um daginn og það var ógeðslega gaman. Ég komst í b liðið aftur held að það hafi ekki verið erfitt val en ég hefði þurft að vera hérna í febrúar til að komast í a liðið af því þá voru trials fyrir það en við keppum á móti a liðinu 22. apríl og við ætlum að rústa þeim!! 15. apríl keppum við á móti port melbourne sem vinur minn úr skólanum spilar með (ætlum að rústa þeim líka.) Erum að fara í bústaðinn annað kvöld og það verður rosalega gaman en við erum bara í klukkutíma fjarlægð frá bænum. Gott ef að litla systir ætlaði sér að fara að koma út.

Ætla að fara að drífa mig að sofa eða spila við pabba eitthvað. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 22:25:02 / Kristófer

Langt síðan ég bloggaði!!

Nú er svoldið langt síðan ég bloggaði, síðasta sunnudag og núna er föstudagur. Ég er búinn að fara í skólann alla vikuna og það er búið að vera fint nenni ekki að segja alltaf hvað ég er að gera það er bara hundleiðinlegt fyrir ykkur. Nema að í gær fimmtudag komu Gatorade kallar í sports hjá okkur og við fórum í fótbolta!!!! Svo eru þessir brjáluðu footy gaurar sem hoppa á þá bestu (fékk 5 víti) og búningurinn drulluskítugur. Ég var með dananum Jeremy í liði og ég tók bara 1 víti leyfði öðrum líka. Við rústuðum báðum leikjunum okkar (nennti ekki að telja) en ég skoraði 2 mörk með 5 sekúndna millibili en við vorum að nota 2 bolta og ég var kallaður the iceman og fékk líka lyklakippu fyrir best team player. Svo fór ég í fótbolta í lunch time með year 12 og einum úr 8b (ég er í 8a) og einn 18 ára gaurinn skaut boltanum út í kanalinn og fékk þar af leiðandi sundsprett. skýtur sækir. Kanallinn er drulluskítugur. Svo var eikkað bull eftir já double english en ég fékk að fara fyrr af því að ég var svo hljóðlátur. Við gerðum eitthvað um vikuna man ekki neitt. Páskafríið er eftir þennan dag og ég missi af double sports =´(. En í páskafríinu ætlum við að fara með finnunum eitthvert og synda með HÖFRUNGUM!!!! það verður ógeðslega gaman. Svo fara bráðum að koma einhverjar myndir erum ekki búin að taka mikið af myndum en það gerist í páskafríinu. Þarf að drífa mig í skólann.

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 10:09:44 / Kristófer

Búin að fara á ströndina!

Á Miðvikudaginn fórum við í partý hjá bekknum hennar Thelmu af því að þau voru komin með fulla krukku af klemmum og það þýðir partý. Ég var að aðstoða við Cricket (ekki eins og á íslandi) og ég vissi ekkert hvað krakkarnir áttu að gera þannig að ég lét alltaf þann sem kunni Cricket stjórna...:S Svo fórum við heim og aftur upp í skóla að sækja Thelmu og Miranda vinkona hennar kom með.

 

Á fimmtudaginn var íþróttadagur hjá Thelmu, nóg að gera, og hún varð í 4 og 2 sæti! flottur árangur. Svo kom hún snemma heim vegna þess að henni var orðið óglatt og hafði dottið en svo kom í ljós að hana vantaði bara smá loftkælingu og vatn (loftræstingin er biluð í skólanum hjá henni.) Svo klukkan 5 fórum við á ströndina og hittum nokkra bekkjarfélaga hennar Thelmu og hún fór að leika með þeim á meðan ég fór út í sjó og kastaði tennisbolta á milli með pabba, svo kom ég upp úr og fór með honum í fótbolta (endaði með því að ég flaug á hausinn og varð allur út í sandi.) Þegar það byrjaði að kvölda fórum við á veitingastað þarna nálægt og ég fékk kjötbollur og spaghetti. Svo fórum við heim að sofa, allaveganna ég.

 

Á föstudaginn var fyrsti skóladagurinn minn!!! Við mættum í afgreiðsluna um 8:40 og skólinn byrjaði svo 8:45 en ég fór ekki inn í tíma fyrr en um 9:15 eða eitthvað og inn í stærðfræði og meira segja ég skildi ekkert rosalega mikið í þessari Algebru en var fljótur að læra á kerfið. Svo var enska og eitthvað bull en svo var hádegishlé og Unnur kom og við keyptum skólabúninginn. Ég hitti Martin aftur!!!:P og var með honum allt hádegishléið en svo var double sports, ekki sem verst og það var skemmtilegt. Vildi að það væri alltaf double sports! Svo fór ég heim og var grútþreyttur og spilaði aðeins við Thelmu. Ég var svo sofnaður um 8:30 (ég er eins og litlu börnin!)

 

Í dag vaknaði ég loksins svoldið seint, 7:45!!! og var næstum búinn að sofa í 12 tíma. Ég var mest í tölvunni í morgun en svo fórum við í búðir (not my favourite to do at weekends..) Við fórum í IKEA og keyptum skrifborðsstól og fleira fyrir mig. Svo fórum við og keyptum skólaskó (þurfa að vera einhverjir rosalega fínir spariskór, ekki mikið til að spila fótbolta í:frown::frown::whut:) Svo fórum við og keyptum skólabækurnar og svona og borðuðum svo pasta í matinn. Ég er alveg að sofna hérna og klukkan er 19:40! ætla að reyna að vaka til svona 9.

Til hamingju með afmælið amma Stína og Óli


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Hven�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 733812 dögum
Skemmtilegir tölvuleikir
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1061 dögum
�?�?�?�??�?�?��?¾a�?�?�?�??�?�??�?° eru...
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 984 dögum
Dagsetning
10. febrúar 2010
Leitarbox